My Influence on the world

Af hverju flyturu ekki til Noregs?

þriðjudagur, mars 29, 2005

#1 Bestseller.....tsssssssssss
Ég fór uppá library Kópavogs í dag og náði mér í bók sem heitir leonard Maltin´s 2005 Movie guide. Þessi dude á að heita einn virtasti kvikmyndagagngrýnandi heims. Ég ætla að vera ósammála honum, þó það séu yfir 18 þús myndir skráðar í bókina hans þá hefur hann samt mjög súran smekk á myndum finnst mér. Allavega er ósamræmið milli mynda og gerða þeirra all svakalegur. Mér hreinlega blöskraði eftir að hafa flett upp mörgum af mínum uppáhaldsmyndum og myndum sem mér líkar ekki við. Og henti bókinni frá mér, ég ætla að sýna ykkur nokkur dæmi og þið munið vita um hvað ég er að tala, takið sérstaklega eftir ósamræminu í stjörnugjöfinni:

Troy ***1/2
Knockaround guys ***
Marathon Man **
Blade **1/2
Babe(Baddi grís) ***1/2
Freaky Friday ***
Shining **
Taxi Driver **
Crossroads **1/2
Clockstoppers **
Fight Club **
The Rock **
Legally Blonde **1/2
Scarface *1/2
Usual Suspects **1/2
Shawshank Redemption **1/2
Fast & the furious ** 1/2
Casino **
Dumb & Dumber **
You Got Served **
Glitter & Gigli *1/2 (Já Glitter og Gigli eru jafngóðar og Scarface)
little Nicky **
Like Mike ***
The Core ***
Big Lebowski **

Það er enginn að fara að segja mér að Troy og babe séu bestu myndirnar á þessum lista. Það að þær ásamt Knockaround guys, Like Mike, The core og Freaky Friday séu hærra skrifaðri en Marathon Man, Taxi Driver, Shining, Fight Club, Usual Suspects og SHAWSHANK REDEMPTION er einhver mesta fucking della sem ég hef heyrt. Það rýkur af mér reiðinn að sjá svona meistaraverk lægra skrifaðar en einhverjar ömurlegar hollywood dellur með glötuðum röppurum í aðalhlutverkum. Þetta er hryllingur. Ef að Crossroads er jafngóð en Shawshank redemption þá skal ég fá mér permanet tvisvar í viku það sem eftir er að lífi mínu. Britney vs Tim Robbins og Morgan Freeman............hummmmmmmmmmmm?????

Leonard Maltin þú þarft alvarlega að fara að hugsa þinn gang. FÍFL