My Influence on the world

Af hverju flyturu ekki til Noregs?

mánudagur, apríl 18, 2005

Bad movie blog
Maður er alltaf að tala um bestu myndir sem maður hefur séð og bestu leikara en ég ætla aðeins að tala um brot af því versta sem ég hef séð. Maður hefur eytt ófáum 800 krónunum í skítavitleysu bara til að fara í bíó, þökk sé Steina og Rúti.

In the cut: Án efa ein leiðinlegasta mynd sem ég hef augum litið. Við félagarnir höfum nú oftast fundið einhverjar leiðir til að skemmta okkur í bíó en ég hefði frekar viljað vera að horfa á Didier Drogba dansa og fanga enska meistaratitlinum í 30 mín en að horfa á þetta.

Million dollar hotel: Jebb ég og Viktor már skelltum okkur á þessa fyrir mörgum árum. Án efa leiðinlegasta og tómasta mynd sem ég hef séð. Hápunktur: Viktor lenti í líkamsáras af einhverjum gaur sem hélt að við værum að hlægja að honum.

The Core: Ojjjj segir allt. Leiðinlegt. Fáranleg. Óraunveruleg. Vísindamenn ákveða að bora sig inn í kjarna jarðar til að bjarga heimsendi, segir allt sem segja þarf.

Like Mike: Ef Bow Wow væri ekki svona ungur og þetta var hans "debut" hefði hann fengið Razzie award. Hef nú aldrei talið hann svalan en er hann grét í lokin á þessari fáranlegu mynd missti hann allt kúl. Skelfilegur söguþráður sem bara mamma Bow wow gat skemmt sér yfir.

Home Alone 4: Sjáið til að trúa. ÖMURLEGUR leikur allra í myndinni. Home alone jólafílingurinn kreistur þangað til hann fer að bólgna. Hryllingur.

Ghost ship: Nei

Glitter: Það er enginn furða að Mariah greyið reyndi að drepa sig eftir að hafa séð frammistöðu sína.

2 Fast 2 Furious: Svarti gaurinn, Asíska stelpan og Paul Walker áttu ekki einu sinni Razzie skilið fyrir frammistöðu sína.

Speed: Nei

Batman & Robin: Joel Schumacher skeit á sig.

Battlefield Earth: Lægsti punkturinn á ferli Travolta.

Ég er nú vafalaust að gleyma einhverju, svo þið verðið að hjálpa mér.

Að lokum koma vonlausir leikarar:
Mariah Carey
Britney Spears
Steven Seagal:
Hef reyndar lúmskt gaman af honum.
Van Damme
SANDRA BULLOCK
Svarti gaurinn í 2 Fast 2 Furious
Og einhverjir fleiri sem ég er að gleyma