My Influence on the world

Af hverju flyturu ekki til Noregs?

sunnudagur, apríl 03, 2005

Freakin sweet
Í dag(sunnudag) fór ég í afmælisveislu til litlu frænku minnar. Þar hitti ég fyrir litla frænda minn Tóta Jör. Við fórum í herbergi annars frænda að nafni Gummi Kei. Hann var á Akureyri að djöflast á snjóbretti. Þegar litli frændi minn fór að glamra á gítar þurfti ég að finna mér eitthvað að gera.

Ég rak augun í gula merkimiða. Og þá datt mér snilldin í hug. Ég tók heilann búnka af miðunum og byrjaði með að skrifa með stórum stöfum efst: "Orðaforði nýbúans". Svo skrifaði ég fyrir neðan t.d sjónvarp, gítar eða sími. Og límdi miðan síðan á viðkomandi hlut. Svona hélt ég áfram mér og litla frænda til mikillar skemmtunar. Þangað til ég var búinn að gera u.þ.b 50 miða eða svo og búinn að líma þá víða um herbergið á flesta sjáanlega hluti. Þetta fannst mér virkilega gaman og langaði helst að setja video cam í herbergið til að sjá svipinn á Gumma er hann kæmi heim.

Svo um 23 sit ég að horfa á sjónvarpið er ég heyri símann minn hringja. Ég hugsa "hver er að hringja í mig núna". Ég tek upp símann og sé Gummi K gsm. Ég spring úr hlátri og svara símanum þá heyri ég þreytta rödd segja: "á ég að fucking lemja þig". Ég hlæ enn meira. En hann hafði reyndar húmor fyrir þessu að lokum, og við hlóum dátt.

Ég hvet alla til að gera einhverjum svona gikk því þetta er mjög hressandi í erfiðri skólatörn að gera svona og létta upp á skapið..........

P.S það á að sekta Ruud van Nistelrooy fyrir ömurlega frammistöðu gegn Blackburn á sunnudaginn...........