My Influence on the world

Af hverju flyturu ekki til Noregs?

fimmtudagur, maí 12, 2005

R.I.P Manchester United Football Club
12. Maí 2005 er dagurinn sem börnin mín munu lesa um í sögubókum sínum eftir nokkur ár. Þetta er dagurinn sem Manchester United football club hrundi. Malcolm Glazer, satan sjálfur, peningagráðug kanamella náði meirihluta í Manchester United. Hann kaupir félagið á 800 milljónir punda, sem hann á ekki, sem þýðir að hagnaður United fer í að borga upp skuldir hans. Og er óvíst hvort við stöndum undir því. Talið er að 20.000 stuðningsmenn United muni yfirgefa félagið og stofna nýtt lið FC United sem mun byrja í utandeildinni næsta vetur. Klukkan fimm í dag ætla stuðningsmenn United að hittast fyrir utan Old Trafford og brenna umsóknir sínar um ársmiða á næsta seasoni. Og hvað gerist þegar 20.000 hörðustu United stuðningsmennirnir yfirgefa félagið, jú enginn hagnaður sem þýðir að Glazer mun ekki geta borgað upp skuldir sínar og því verður liðið eins og Leeds. Semsagt United verður í neðri deildum næstu árin.

Allt sem United byggði upp. Allir peningarnir sem maður hefur sett í félagið í vörur tengdar félaginu og miða á leiki félagsins. Mínir peningar sem og þúsunda annarra stuðningsmanna um allan heim, sem byggði upp stærst og mikilfenglegasta knattspyrnulið allra tíma verður rifið á næstu árum af þessari fucking kanahóru sem veit ekkert út í hvað hann er að fara. Því að "það" fylgist ekki einu sinni með fótbolta.

Takk fyrir, enski bolti, þú mótaðir mig. Manchester United mótaði líf mitt og mun ég aldrei gleyma árinu 99 og öðrum stundum sem þið hafið gefið mér ómælda hamingju. Nú þarf ég að þurrka tárin úr augunum, sem leka yfir lyklaborðið þessa stundina og fara að snúa mér að einhverju öðru, því fótbolti er ekki lengur hlutur sem ég hef áhuga á að eyða tíma, peningum og litla hjarta mínu í

The body has gone, the soul lives on.
Rest in peace Manchester United